- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Knorr, Mandic, Bjørnsen, Nilsson

Juri Knorr mætir til leiks með Þjóðverjum í átta liða úrslitum HM í dag. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Juri Knorr leikstjórnandi þýska landsliðið mætir til leiks á ný í kvöld þegar Þjóðverjar mæta Portúgölum í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts í Bærum í  Noregi í kvöld. Knorr var fjarri góðu gamni í síðustu leikjum Þjóðverja á HM vegna veikinda. Leikur Þýskalands og Portúgals hefst klukkan 19.30 og verður sýndur á RÚV2.
  • David Mandic landsliðsmaður Króata er sagður vera meiddur og úr leik það sem eftir er á HM. Svipuð tíðindi voru af honum um það bil sem mótið hófst en engu að síður kom hann m.a. galvaskur til leiks gegn íslenska landsliðinu. Taka ber öllum fregnum af meiddum mönnum úr herbúðum Króata með fyrirvara.
  • Króatar og Ungverjar mætast í átta liða úrslitum í dag. Leikurinn hefst klukkan 17 og verður sýndur á RÚV.
  • Kristian Bjørnsen lék sinn síðasta landsleik fyrir Noreg á sunnudaginn gegn Svíum á HM í handknattleik. Bjørnsen, sem er hægri hornamaður og einnig með Aalborg Håndbold, hefur leikið 215 landsleiki og skoraði 750 mörk. Bjørnsen er 36 ára gamall. 
  • Andreas Nilsson sem kom inn í sænska landsliðið rétt fyrir HM þegar Max Darj meiddist í vináttuleiki við íslenska landsliðið, hefur tilkynnt að hann hafi leikið sína allra síðustu landsleiki fyrir Svíþjóð á HM. Svíar luku keppni á HM með tapi fyrir Noregi, 29:24, og enduðu í 13. sæti.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -