- Auglýsing -
- Bergischer HC vann N-Lübbecke með 13 marka mun á útivelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik á útivelli í gærkvöld, 34:21. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik þá tók Bergischer HC völdin í þeim síðari og skoraði tvö mörk á móti hverju einu sem liðsmenn N-Lübbecke skoruðu.
- Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer HC. Liðið hefur unnið fjórar fyrstu viðureignir tímabilsins í deildinni og trónir í efsta sæti. GWD Minden er stigi á eftir í öðru sæti. Efstu liðin tvö mætast í 5. umferð á föstudaginn á heimavelli Bergischer
- Tjörvi Týr Gíslason lék að vanda með Bergischer HC en skoraði ekki mark að þessu sinni. Hann var fastur fyrir í vörninni.
- Elmar Erlingsson skoraði ekki mark en átti þrjár stoðsendingar þegar lið hans, Nordhorn–Lingen, tapaði fyrir Hüttenberg, 26:21, á útivelli í 2. deild þýska handknattleiksins í gær. Nordhorn hefur unnið einn leik af fjórum til þessa í deildinni og er í 15. sæti af 18 liðum.
- Stöðuna í þýsku 2. deildinni og í fleiri deildum Evrópu er að finna hér.
- Óðinn Þór Ríkharðsson var ekki í leikmannahópi Kadetten Schaffhausen þegar liðið vann RTV 1879 Basel, 34:31, í Basel í gær í svissnesku A-deildinni í handknattleik. Kadetten er sem fyrr efst í deildinni. Liðið hefur nú 12 stig eftir sjö leiki.
- Auglýsing -