- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Bellahcene, Gottfridsson, Blagotinšek, Kosorotov, Eun Hee

Samir Bellahcene markvörður. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Franski landsliðsmarkvörðurinn Samir Bellahcene hefur samið við rúmenska meistaraliðið Dinamo Búkarest. Bellahcene lék í vetur með Stuttgart í Þýskalandi en var áður hjá THW Kiel en varð að róa á önnur mið síðasta sumar þegar Andreas Wolff kom til félagsins. 
  • Sænski miðjumaðurinn Jim Gottfridsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Flensburg eftir 12 ára veru hjá félaginu. Hann gengur til liðs við Pick Szeged í sumar. Gottfridsson er 32 ára gamall og ólst upp í Ystad í Svíþjóð. Um árabil hefur hann verið einn besti leikmaður þýsku 1. deildarinnar. 
  • Slóvenski varnar- og línumaðurinn Blaž Blagotinšek hefur á hinn bóginn ákveðið að vera um kyrrt hjá Flensburg. Hann skrifaði fyrir helgina undir þriggja ára samning við félagið sem hann hefur leikið með undangengin tvö ár. 
  • Rússneski handknattleiksmaðurinn Sergei Kosorotov hefur á ný samið við pólska meistaraliðið Wisla Plock eftir tveggja ára vist hjá ungverska meistaraliðinu One Veszprém.  Kosorotov lék afar vel með Veszprém í vetur og er af honum töluverður söknuður í herbúðum félagsins. 
  • Kosorotov lék með Wisla Plock frá 2021 til 2023 en til félagsins kom hann þá frá Chekhovskiye Medvedi í Moskvu
  • Ryu Eun Hee stórskytta frá Suður Kóreu hefur kvatt Evrópumeistara tveggja síðustu ára, Györ Audi ETO KC, að lokinni fjögurra ára veru. Hún ætlar að leika með félagsliði í heimalandi sínu á næsta keppnistímabili.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -