- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Birta Rún, Viktor, Ísak, staðan

Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Birta Rún Grétarsdóttir skoraði tvisvar sinnum þegar lið hennar, Fjellhammer, vann Storhamar2 með 17 marka mun, 35:18, í næst efstu deild norska handknattleiksins á heimavelli í gær.  Fjellhammer og Volda eru efst í deildinni með átta stig hvort lið. Fjögur lið eru þar á eftir með sex stig hvert, ýmist að loknum fjórum eða fimm viðureignum. 
  • Drammen tapaði fyrir Runar á heimavelli í gær í síðasta leik 6. umferðar norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, 34:32. Drammen hefur þar með tapaði tveimur leikjum í röð og er í 4. sæti með átta stig.
  • Viktor Petersen Norberg skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar í liði Drammen. Ísak Steinsson markvörður náði sér ekki á strik þann tíma sem hann stóð á milli stanganna í marki Drammen og varði ekki skot. 
  • Stöðuna í norsku úrvalsdeildinni og í fleiri deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -