- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Bodó, Valdés, Olympiakos, Maldonado, Kühn, Kelentric, Coatanéa

Richárd Bodó í leik með Pick Szeged. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Hinn þrautreyndi Richárd Bodó hefur framlengt samning sinn við ungversku bikarmeistarana Pick Szeged til tveggja ára. Ungverski landsliðsmaðurinn hefur verið í níu ár hjá félaginu og skoraði á þeim tíma 1.182 mörk og bæði unnið ungversku deildina og bikarkeppnina með liðinu. 
  • Kúbanski handknattleiksmaðurinn Pedro Valdés hefur samið við rúmenska meistaraliðið Dinamo Búkarest. Valdés hefur síðustu fjögur ár leikið með FC Porto og í önnur fjögur ár þar á undan hjá Sporting Lissabon
  • Olympiakos vann gríska meistaratitilinn í handknattleik karla í gær. Olympiakos vann meistara síðasta árs, AEK, 32:30, í fimmta og síðasta úrslitaleik liðanna sem fram fór á heimavelli AEK sem varð deildarmeistari. 
  • Þýski handknattleiksmaðurinn Julius Kühn leitar þessa dagana að öðru liði til þess að leika með en samningur hans við Bietigheim rann út á dögunum eftir að liðið féll naumlega í 2. deild. Kühn er 32 ára gamall og hefur lengi átt sæti í þýska landsliðinu auk þess að leika víða með félagsliðum.
  • Eloy Morante Maldonado leikmaður Bergsicher HC sem vann 2. deild þýska handknattleiksins með talsverðum yfirburðum á dögunum, var kjörinn besti leikmaður deildarinnar. Hann hlaut þriðjung atkvæða. Maldonado, sem leikið hefur með Bergischer HC í tvö ár, varð markakóngur deildarinnar með 230 mörk auk þess að gefa 95 stoðsendingar. 
  • Mario Kelentric markvarðarþjálfari Gummersbach, og einn samstarfsmanna Guðjóns Vals Sigurðssonar þjálfara, hefur látið af störfum hjá félaginu eftir fjögur ár. Kelentric var ekki aðeins þjálfari markavarða aðalliðs Gummersbach heldur var einnig þjálfari yngri markvarða félagsins. Ekki hefur verið tilkynnt hver taki við  af Kelentric.
  • Franska landsliðskonan Pauline Coatanéa hefur ákveðið að taka ekki þátt í fleiri landsleikjum. Coatanéa er 31 árs gömul. Hún heldur ótrauð áfram að leika með franska félagsliðinu Brest Bretagne.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -