- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Dagur, Grétar, Aalborg Håndbold

Dagur Gautason leikmaður Montpellier. Ljósmynd/Montpellier handball
- Auglýsing -
  • Dagur Gautason og liðsfélagar í Montpellier unnu PAUC, 31:27, á útivelli í síðustu umferð frönsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Dagur skoraði ekki mark á þeim 30 mínútum sem hann tók beint þátt í leiknum en um var að ræða síðasta leik hans fyrir félagið.
  • Montpellier hafnaði í þriðja sæti deildarinnar átta stigum á eftir PSG sem varð franskur meistari 11. árið í röð. Nantes hreppti annað sætið fjórum stigum á undan Montpellier.
  • Dagur samdi við Montpellier til skamms tíma í febrúar. Hann leitar nú að nýju liði. Með Montpellier varð Dagur franskur bikarmeistari í síðasta mánuði.
  • Grétar Ari Guðjónsson og liðsfélagar í Ivry féllu í 2. deild franska handknattleiksins. Þeir voru fyrir nokkru fallnir úr deildinni áður en koma að síðasta leiknum í gær sem tapaðist fyrir Chartres, 35:33.
  • Grétar Ari var í marki Ivry í rúmar 18 mínútur og varði 3 skot, 23%. Ekki er annað vitað en að Grétar Ari verði áfram hjá Ivry.
  • Aalborg Håndbold varði danskur meistari annað árið í röð, og í áttunda sinn alls, þegar liðið lagði Skjern öðru sinni í úrslitum, 29:26. Leikið var á heimavelli Skjern.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -