- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Dolenec, Salvador, Costa-bræður, Barthold, Lunde

June Dolenec í með landsliði Slóveníu. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Slóvenski handknattleiksmaðurinn góðkunni, Jure Dolenec, hefur tilkynnt að hann ætli sér að hætta í handknattleik í sumar. Dolenec er 36 ára gamall. Hann byrjaði tímabilið RK Nexe í Króatíu en endaði það með RK Slovan í heimalandi sínu. 
  • Þegar Dolenec var upp á sitt besta lék hann í fjögur ár með Barcelona frá 2017 til 2021. Þar áður og á eftir var hann í nokkur ár með Montpellier og síðan Limoges í Frakklandi eftir að hann kom til Frakklands á ný eftir Katalóníudvölina. Á 15 ára ferli með landsliði Slóveníu hefur Dolenec leikið 207 landsleiki, þá síðustu á HM í janúar þegar hann stökk til vegna meiðsla á miðju móti.
  • Bræðurnir Martím og Francisco Costa auk Salvador Salvador hafa framlengt samninga sína við portúgalska meistaraliðið Sporting í Lissabon. Þremenningarnir eru kjölfesta meistaraliðsins. Bræðurnir hafa lengi verið undir smásjá félaga utan Portúgal en ljóst er að með þessum samningum fara þeir hvergi á næstu árum. 
  • Þýska handknattleiksliðið SC Magdeburg staðfesti í gær að norski vinstri hornamaðurinn Sebastian Barthold hafi skrifað undir samning við félagið frá og með sumrinu. Barthold kemur til félagsins frá danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold.  Barthold á að fylla skarð Matthias Musche sem verður frá keppni fram í febrúar á næsta ári vegna meiðsla.
  • Katrine Lunde getur orðið um helgina fyrst til þess að vinna Meistaradeild Evrópu í áttunda sinn á ferlinum. Lunde, sem er 45 ára gömul og er enn besti markvörður heims í kvennaflokki, leikur með Odense Håndbold sem mætir Metz í undanúrslitum í dag í MVM Dome í Búdapest. Sigurliðið leikur til úrslita á morgun gegn annað hvort Györi eða Esbjerg.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -