- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Elliði, Teitur, Guðjón, Andri, Rúnar, Dagur, Grétar

Elliði Snær Viðarsson var í sigurliði Gummersbach í gærkvöld. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach þegar liðið vann Leipzig, 32:31, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í Schwalbe-Arena í Gummersbach í gær. Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach sem situr í 7. sæti með 38 stig eftir 32 leiki af 34.
  • Andri Már Rúnarsson lék afar vel fyrir Leipzig í leiknum í gær. Hann skoraði m.a. sjö mörk, gaf eina stoðsendingu og var einu sinni vikið af leikvelli. Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Leipzig sem er í 12. sæti með 21 stig þegar tveir leikir eru eftir. 
  • Ýmir Örn Gíslason skoraði þrjú mörk fyrir Göppingen þegar liðið vann Potsdam, 25:21, á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Göppingen er í 13. sæti með 21 stig eftir 32 leiki. Liðið á tvo leiki eftir áður en deildarkeppninni lýkur.  
  • Dagur Gautason lék ekkert með Montpellier þegar liðið gerði jafntefli við PSG, 33:33, í 28. umferð frönsku 1. deildarinnar í handknattleik í Montpellier í gær. Montpellier er í 3. sæti deildarinnar með 46 stig eftir. PSG er efst með 52 stig en Nantes er í öðru sæti með 49 stig.
  • Grétar Ari Guðjónsson varði fjögur skot, 20%, á þeim rúmu 20 mínútum sem hann var í mark Ivry þegar liðið tapaði fyrir Dunkerque, 27:24, á útivelli í 28. umferð frönsku 1. deildarinnar á föstudagskvöld. Ivry er fallið úr deildinni. Liðið hefur níu stig þegar tvær umferðir eru eftir af 30.  Créteil er næst neðst með 15 stig en á möguleika á að hanga uppi. 
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -