- Auglýsing -
- Finnur Ingi Stefánsson leikmaður Vals varð 34 ára gamall á föstudaginn. Hann hélt upp á daginn með því að fagna Íslandsmeistaratitli með félögum sínum í Val um kvöldið. Einnig sungu samherjar Finns Inga afmælisönginn fyrir hann við verðlaunaafhendinguna.
- Önnur sterk hollenska handknattleikskona hefur orðið að draga sig út úr landsliðshóp fyrir Ólympíuleikana. Í gær greindi Delaila Amega frá því að vegna hnémeiðsla fari hún ekki með hollenska landsliðinu á leikana. Hún glímir nú við þriðji hnémeiðslin á einu ári. Fyrr í vikunni varð leikstjórnandinn Estvana Polman að draga sig í hlé.
- Christian Prokop fyrrverandi landsliðsþjálfari Þjóðverja í handknattleik karla er orðaður við þjálfarastarfið hjá Hannover-Burgdorf. Carlos Ortega sem nú gegnir starfinu er á leið til Barcelona. Prokop er enn á launum hjá þýska handknattleikssambandinu og þarf að ná samkomulagi um slit á honum ef til kastanna kemur.
- Portúgalski landsliðsmaðurinn Antonio Areia hefur framlengt samning sinn við Porto til ársins 2023.
- Víkingur náði síðasta sætinu
- Fjölnir hafði betur í grannaslag í bikarnum
- Grótta í 16-liða úrslit – fín stemning í Garðinum
- Ný málskotsnefnd sendi leikbrot Ásgeirs Snæs til aganefndar
- Nunes í eins leiks bann – framkoma Braga Rúnars til skoðunar
- Auglýsing -