- Auglýsing -
- Eftir nokkurt þref hefur norski landsliðsmaðurinn Tobias Grøndahl verið seldur frá danska liðinu GOG til Füchse Berlin. Hermt er að söluverðið séu 500 þúsund evrur sem er sama upphæð og Flensburg lagði út fyrir Simon Pytlick þegar hann fór frá GOG fyrir tveimur árum. Grøndahl, sem átti tvö ár eftir samningi sínum hjá GOG, hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá Berlínarliðinu. Samningurinn tekur gildi næstu mánaðamót.
- Tomislav Jagurinovski, sem lék með Þór Akureyri í Grill 66-deildinni leiktíðina 2021/2022 hefur skrifað undir samning við þýska 2. deildarliðið Dessau-Roßlauer HV. Síðan Jagurinovski kvaddi Akureyri vorið 2022 hefur hann leikið með Vardar Skopje og kom m.a. með liðinu hingað til lands í vetur sem leið þegar Vardar sótti Val heim í Evrópudeildinni.
- Esbjerg vann fyrsta úrslitaleikinn um danska meistaratitilinn í handknattleik kvenna í gær. Esbjerg lagði Odense Håndbold, 38:31, þegar liðin mættust á heimavelli síðarnefnda liðsins. Leikmenn Odsene náðu sér ekki á strik. Virtust þeir ekki hafa jafnað sig eftir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á sunnudaginn þegar liðið lék í fyrsta sinn til úrslita en tapaði fyrir ungverska meistaraliðinu Györi.
- Næsti úrslitaleikurinn fer fram í Esbjerg á sunnudaginn. Vinni Esbjerg öðru sinni verður liðið danskur meistari þriðja árið í röð.
- Ikast vann stórsigur á København Håndbold, 38:21, í leiknum um þriðja sætið í úrvalsdeild kvenna í Danmörku. Liðin eigast einnig aftur við á nýjan leik á sunnudaginn.
- Færeyski landsliðsmaðurinn, Hákun West Av Teigum, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Füchse Berlin. Samningurinn gildir til ársins 2028. West Av Teigum leikur í hægra horni. Hann hefur verið hjá Füchse Berlin síðustu tvö ár.
- Þýski hornamaðurinn Patrick Groetzki er sagður ætla að leggja keppnisskóna á hilluna eftir ár. Hann er á 36. aldursári og hefur allan sinn feril, frá 2007, leikið með Rhein-Neckar Löwen. Slíkur ferill með sama liðinu er fáheyrður um þessar mundir. Groetzki hefur leikið með þýska landsliðinu frá 2009, alls 143 leiki.
- Þýski landsliðsmaðurinn Paul Drux var kvaddur af stuðningsmönnum Füchse Berlin í gær fyrir viðureign liðsins við Gummersbach. Ferill Drux hefur verið þyrnum stráður síðustu árin vegna meiðsla. Fór svo að hann ákvað í vetur að leggja keppnisskóna á hilluna. Samningur hans við Füchse rennur út í lok þessa mánaðar.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -