- Auglýsing -
- Halldóra Ingvarsdóttir hefur tekið við af Guðríði Guðjónsdóttir sem fararstjóri U20 ára landsliðs kvenna sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer í Skopje í Norður Makedóníu. Guðríður, sem er formaður landsliðsnefndar kvenna, hefur verið úti með landsliðinu síðustu vikuna meðan undirbúningur fór fram.
- Íslenska landsliðið vann fyrsta leik sinn á HM í gær, 24:19, gegn Afríkumeisturum Angóla. Næsti leikur verður gegn Norður Makedóníu á morgun, föstudag, klukkan 16.
- Arnar Þorkelsson, sem verið hefur gjaldkeri HSÍ um árabil, gaf ekki kost á sér til endurkjörs til stjórnar HSÍ á 67. ársþingi sambandsins í gær. Í lok þingsins var Arnar sæmdur gullmerki HSÍ og silfurmerki ÍSÍ fyrir framúrskarandi störf fyrir HSÍ í gegnum árin.
- Bjarni Ákason, Ólafur Örn Haraldsson og Sigurborg Kristinsdóttir komu inn í stjórn HSÍ á þinginu í gær. Úr stjórn gengu Arnar Þorkelsson og Kristján Gaukur Kristjánsson. Fyrir var laust sæti í stjórn í kjölfar þess að Davíð Lúther Sigurðsson gekk úr stjórninni í nóvember.
- Auglýsing -