- Auglýsing -
- Haukur Þrastarson er leikmaður marsmánaðar hjá þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen. Hann skoraði 34 mörk í leikjum mánaðarins og gaf 30 stoðsendingar. Skotnýting hans var 73%.
- Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Göppingen fögnuðu sigri á Leipzig, 34:29, í 28. umferð þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Leipzig. Ýmir Örn skoraði ekki mark í leiknum. Göppingen er í 9. sæti.
- Blær Hinriksson skoraði þrjú mörk fyrir Leipzig-liðið sem áfram rekur lestina í deildinni.
- Bjarki Már Elísson var ekki í leikmannahópi One Veszprém í gær þegar liðið gerði jafntefli, 35:35, í síðari viðureigninni við PSG í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu. One Veszprém vann fyrri leikinn með átta marka mun og tekur þar með sæti í átta liða úrslitum hvar leikir við Füchse Berlin bíða.
- Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad unnu HF Karlskrona öðru sinn í gærkvöld í átta liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld, 31:28. Leikið var í Karlskrona.
- Einar Bragi skoraði tvö mörk eins og Arnar Viðarsson leikmaður HF Karlskrona. Þriðja viðureign liðanna fer fram í Kristianstad Arena á mánudaginn.
- Auglýsing -


