- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Ísak, Sigvaldi, Sigurjón, Benedikt, Ísak, Guðmundur, Ólafur, Óðinn, Árni, Elías

- Auglýsing -
  • Ísak Steinsson og liðsfélagar í Drammen unnu Bækkelaget, 28:24, í næstsíðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Drammen HK situr í fjórða sæti deildarinnar.
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sjö mörk þegar Kolstad vann Runar, 35:31, á útivelli í næstsíðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk og gaf átta stoðsendingar. Sigurjón Guðmundsson varði fjögur skot þann tíma sem hann stóð í marki Kolstad.
  • Kolstad er í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum á eftir Elverum sem situr á toppnum.
  • Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk þegar TMS Ringsted vann HØJ, 33:30, á útivelli í umspili neðstu liða dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Ísak átti einnig eina stoðsendingu. Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði ekki mark en gaf tvær stoðsendingar. Hafnfirðingurinn er einnig leikmaður TMS Ringsted.
  • Ólafur Brim Stefánsson skoraði eitt mark er lið hans Junior Fasano tapaði fyrir Conversano, 28:24, á heimavelli í 23. umferð ítölsku A-deildarinnar í gær. Nokkuð hefur hallað undan fæti hjá Junior Fasano í síðustu leikjum og situr liðið í 6. sæti og þarf að herða róðurinn til þess að ná inn í úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna. Þrjár umferðir eru eftir í deildinni.
  • Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk, þar af þrjú úr vítaköstum, í sigri Kadetten Schaffhausen á GC Amicitia Zürich, 32:28, í fyrstu umferð átta liða úrslita A-deildarinnar í Sviss í gær. Næst mætast liðin í Zürich á laugardag. Vinna þarf þrjá leiki til að öðlast sæti í átta liða úrslitum.
  • Árni Bergur Sigurbergsson skoraði þrjú mörk í sex marka tapi Ryger Stavanger fyrir Åsane, 29:23, í næstefstu deild norska handknattleiksins í gær. Elías Már Halldórsson er þjálfari Ryger í 12. sæti af 14 liðum með 13 stig þegar ein umferð er eftir. Tvö neðstu liðin fyrir lokaumferðina eru stigi á eftir Ryger.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -