- Auglýsing -

Molakaffi: Jastrzebski, Alilovic, Bergerud, Frimmel, Le Blévec

Marcel Jastrzebski markvörður pólska landsliðsins leikur í Króatíu á næstu leiktíð. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Marcel Jastrzebski, sem var einn þriggja markvarða pólsku meistaranna Wisla Plock, á síðustu leiktíð hefur verið leigður til RK Nexe í Króatíu, silfurliðsins þar í landi. Jastrzebski er talsvert efni og þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall hefur hann þegar leikið með pólska landsliðinu, var m.a. í liðinu sem tók þátt í HM í upphafi ársins. 
  • Þar með hafa tveir af þremur markvörðum Wisla Plock á síðustu leiktíð róið á ný mið en Viktor Gísli Hallgrímsson hefur samið við Barcelona til tveggja ára. 
  • Gamla brýnið Mirko Alilovic stendur áfram vaktina hjá Wisla Plock auk þess sem norski landsliðsmarkvörðurinn Torbjørn Bergerud er væntanlegur frá Kolstad. Þriðji markvörður Plock  verður Wojciech Borucki. Hann er leigður frá Azoty Pulawy.
  • Austurríski landsliðsmaðurinn Sebastian Frimmel hefur framlengt samning sinn við ungversku bikarmeistarana Pick Szeged til eins árs. Frimmel hefur leikið stórt hlutverk hjá liðinu á undanförnum árum. 
  • Franska handknattleikskonan og leikmaður Metz, Julie Le Blévec, greindist með krabbamein fyrir ári síðan aðeins 23 ára gömul. Hún hefur verið útskrifuð af læknum og má byrja að æfa af fullum þrótti á nýjan leik. Le Blévec er ein af efnilegri handknattleikskonum Frakklands
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -