-Auglýsing-

Molakaffi: Lindberg, Krzikalla, Witzke, Čavor

- Auglýsing -
  • Danski handknattleiksmaðurinn Hans Óttar Lindberg Tómasson hefur tilkynnt að hann gefi ekki oftar kost á sér í danska landsliðið. Hans, sem er 44 ára gamall, lék með landsliðinu í rúma tvo áratugi og alls 308 landsleiki. Hann, nokkuð kominn yfir sitt besta og hefur ekki leikið með landsliðinu á stórmóti síðan á Ólympíuleikunum 2024. Þess vegna kom tilkynning hans í gær fáum í opna skjöldu. Hans leikur enn þá með HØJ Elite í dönsku úrvalsdeildinni.
  • Forráðamenn þýska handknattleiksliðsins Leipzig, sem rekur lestina í þýsku 1. deildinni, hafa tilkynnt Lucas Krzikalla að hann verði að róa á önnur mið að lokinni leiktíðinni. Það væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Krzikalla hefur verið hjá félaginu í 16 ár. Hann byrjaði ungur hjá akademíu félagsins en vann sér með tíð og tíma sæti í aðalliði félagsins og átti meira að segja drjúgan þátt í að tryggja Leipzig sæti í þýsku 1. deildinni í fyrsta sinn fyrir áratug.
  • Krzikalla segir ákvörðunina hafa valdið vonbrigðum. „Ég er að upplagi jákvæður maður og tek þessu eins og maður. Lífið heldur áfram þrátt fyrir vonbrigði,“ sagði Krzikalla við Sport Bild í Þýskalandi.
  • Þýski landsliðsmaðurinn Luca Witzke mun hafa í hyggju að hætta samstarfi við íslenska umboðsmanninn Arnar Frey Theodórsson og taka upp samstarf við Sasa Bratic sem þykir harður í horn að taka, eftir því sem Sport Bild segir frá.
  • Svartfellingurinn Stefan Čavor kveður þýska liðið HSG Weztlar í sumar eftir áratug með liði félagsins. Hann hefur samið við Slovan Ljubljana, meistaraliðið í Slóveníu, og er samningurinn til tveggja ára.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -