- Auglýsing -
- Í gær staðfesti danska handknattleiksliðið Skjern að danski landsliðsmaðurinn Mads Mensah hafi skrifað undir fjögurra ára samning. Eins og handbolti.is sagði frá fyrr í vikunni hefur Mensah leikið í Þýskalandi síðustu 11 ár, fyrst hjá Rhein-Neckar Löwen og síðustu fimm ár með Flensburg. Koma hans til Skjern var hluti af hringekju skipta á milli Skjern, PSG og Flensburg.
- Brottför Marko Grgic frá Eisenach var einn hluti af hringekjunni. Eisenach samdi í gær við Vukasin Antonijevic til að fylla skarð Grgic. Einnig er ljóst að Eisenach verður lengi án Aleksandar Capric vegna meiðsla.
- Antonijevic er 21 árs gamall Serbi sem hóf ferilinn hjá Metaloplastika Sabac. Síðustu þrjú ár hefur Antonijevic verið í herbúðum RK Celje í Slóveníu.
- Danska landsliðskonan Louise Burgaard leikur hvorki með meistaraliðinu Odense Håndbold né danska landsliðinu á komandi leiktíð. Odense Håndbold tilkynnti að Burgaard væri ólétt.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -