- Auglýsing -

Molakaffi: Nagy, Christensen, Dujshebaev-bræður, Jicha

Martin Nagy fyrrverandi markvörður Vals er kominn til Helsingjaborgar. Ljósmynd/Björgvin Franz
- Auglýsing -
  • Ungverski markvörðurinn Martin Nagy, sem varð Íslandsmeistari með Val vorið 2021, hefur gengið til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið OV Helsingborg. Eftir að Naghy fór frá Val var hann hjá Gummersbach í eitt keppnistímabil en hélt þaðan til Pick Szeged í heimalandi sínu. Hann var um skeið hjá danska úrvalsdeildarliðinu Fredericia HK á síðasta vetri þegar meiðsli hrjáðu markverði liðsins. Nagy á að fylla skarð Norðmannsins Espen Christensen sem líklega er hættur, fertugur að aldri.
  • Bræðurnir Alex og Daniel Dujshebaev róa á ný mið sumarið 2026 eftir að hafa leikið undir stjórn föður síns, Talant, hjá Industria Kielce um langt árabil. Faðir þeirra segir að helsta ástæða þess að synirnir hugsi sér til hreyfings sé sú gagnrýni sem hann og þeir hafa fengið í gengum tíðina og lýtur að því að þeir leiki of mikið með liðinu aðeins vegna þess að faðir þeirra sér þjálfari.
  • Kominn er tími til þess að bræðurnir losni undan þessari ómaklegu gagnrýni, að mati föðursins sem þjálfað hefur Industria Kielce frá 2014.
  • Ekki kemur fram hvert þeir bræður, Alex og Daniel, ætla að fara en víst er að þeir hafa góðar tengingar til Spánar enda báðir aldir þar upp og hafa leikið með spænska landsliðinu um árabil.
  • Til að bregðast við brotthvarfi bræðranna frá Indurstria Kielce hefur félagið samið við Julien Bos leikmann Nantes og Luka Lovre Klarica, ungan leikmann RK Zagreb. Einnig er Faruk Yusuf væntanlegur frá Limoges í Frakklandi.
  • Forráðamenn þýska handknattleiksliðsins THW Kiel eru sagðir velta vöngum þessa daga yfir hvort þeir eigi að bjóða Filip Jicha þjálfara nýjan samning eða ekki. Jicha tók við þjálfun Kiel fyrir sex árum af Alfreð Gíslasyni og hefur síðan unnið þýska meistaratitilinn þrisvar og einu sinni fagnað sigri í Meistaradeild Evrópu. Jicha lék með Kiel frá 2007 til 2015.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -