- Auglýsing -
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk, tvö þeirra úr vítaköstum, þegar Kadetten Schaffhausen lagði TSV St. Otmar St. Gallen, 33:30, á heimavelli í 23. umferð A-deildarinnar í Sviss í gær. Kadetten Schaffhausen er langefst í deildinni, tíu stigum á undan Pfadi Winterthur sem er í öðru sæti.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar í öruggum sigri Alpla Hard á Handball Tirol, 33:28, á útivelli í gær í 15. umferð af 22 í austurrísku 1. deildinni í handknattleik. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Hard í leiknum.
- Alpa Hard er í öðru sæti deildarinnar með 18 stig eftir 15 leiki og er stigi á eftir Ferlach. Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard út leiktíðina.
- IFK Kristianstad er áfram í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik þegar þrjár umferðir eru eftir. IFK vann heillum horfið lið Guif frá Eskilstuna í gær, 24:18, á heimavelli. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk fyrir IFK.
- Malmö er tveimur stigum á eftir IFK Kristianstad í öðru sæti að loknum sigri á IK Sävehof, 32:29, í gær. Leikið var í Partille. Birgir Steinn Jónsson var ekki í leikmannahópi IK Sävehof í leiknum. Sävehof situr í fjórða sæti með 27 stig, níu stigum á eftir forystuliðinu, IFK Kristianstad.
- Dagur Sverrir Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir HK Vinslövs í tapi fyrir Torslanda, 41:32, á heimavelli í Allsvenskan, næstefstu deild sænska handknattleiksins. HK Vinslövs er sem fyrr í næst neðsta sæti deildarinnar.
- Úlfar Páll Monsi Þórðarson var ekki á meðal þeirra sem skoruðu fyrir RK Alkaloid í naumu tapi fyrir Vardar Skopje, 33:32, í fyrstu umferð úrslitakeppni sex efstu liða úrvalsdeildarinnar í Norður Makedóníu í gær.
- Fyrirhugaðri viðureign Þorsteins Leós Gunnarssonar í FC Porto við Maritimo var frestað. Ástæða frestunarinnar er vegna erfiðleika í samgöngum á milli Madeira og Porto. Maritimo-liðið er keppnislið eyjunnar Madeira. Ekki hefur verið ákveðinn annar leikdagur eftir því sem fram kom á heimasíðu FC Porto í gær.
- Auglýsing -


