- Auglýsing -
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk í nítjanda sigri Sporting Lissabon í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Sporting lagði Avanca, 40:30, á útivelli og er efst í deildinni.
- Bergischer HC, liðið sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, tapaði fyrir Füchse Berlin, 35:28, í þýsku 1. deildinni í gær. Bergischer HC situr eftir sem áður í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 10 stig. Füchse Berlin er í öðru sæti með 36 stig, fjórum stigum á eftir Magdeburg en hefur reyndar leikið einum fleiri.
- Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði fimm mörk í tíu marka sigri Volda á Trondheim Topphåndball, 44:34, á heimavelli í næsta efstu deild norska handknattleiksins í gær. Volda situr eftir sem áður í 6. sæti deildarinnar með 25 stig eftir 19 leiki. Sjö umferðir eru eftir óleiknar.
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði átta mörk og gaf þrjár stoðsendingar er Amo HK gerði jafntefli á útivelli við Malmö, 35:35, í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Malmö er í öðru sæti en Amo HK er áfram í 10. sæti af 14 liðum.
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Kolstad þegar liðið vann Sandefjord, 24:22, á útivelli í 20. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Sigurjón Guðmundsson var í leikmannahópi Kolstad en kom ekkert við sögu. Benedikt Gunnar Óskarsson er meiddur.
- Phil Döhler fyrrverandi markvörður FH varði 14 skot, þar af eitt vítakast, 39%, í marki Sandefjord í leiknum við Kolstad.
- Ísak Steinsson varði sex skot, 23%, í jafntefli við ØIF Arendal, 31:31, í norsku úrvalsdeildinni í gær. Leikið var í Arendal. Drammen er í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar, 11 stigum á eftir Elverum sem er efst með 37 stig, fjórum stigum á undan Kolstad.
- Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -



