- Auglýsing -

Molakaffi: Petrus, Fabregas, Remili, PSG, Laube, Pekeler

Thiagus Petrus flytur til Ungverjalands í sumar eftir sjö ára veru í Barcelona. Mynd/EPA
- Auglýsing -
  • Brasilíski handknattleiksmaðurinn Thiagus Petrus gengur til liðs við ungverska meistaraliðið One Veszprém í sumar eftir sjö ára veru hjá Barcelona. Hann segir í samtali ekki endilega haft í huga að fara frá félaginu en orðið hluti af samkomulagi félaganna þegar Frakkinn Ludovic Fabregas ákvað að snúa á ný til Barcelona eftir tveggja ára veru hjá ungverska meistaraliðinu.
  • Franski landsliðsmaðurinn Nedim Remili er sagður vilja fara frá ungverska meistaraliðinu One Veszprém eftir þrjár leiktíðir hjá félaginu. Hermt er að hann vonist til þess að komast að á ný hjá sínu fyrra félagi, PSG.
  • Nýir þjálfarar eru komnir til starfa hjá PSG, Danirnir Stefan Madsen og Henrik Møllgaard. Þeim fylgir ferskur blær sem margir sækjast í.
  • Ivan Marinović er sagður vera efstur á óskalista One Veszprém ef Remili hverfur á braut í sumar.
  • Forráðamenn þýska liðsins Stuttgart segja það ekki koma til álita að félagið selji svissneska línu- og varnarmanninn Lukas Laube til THW Kiel, eins og áhugi mun vera fyrir að hálfu síðarnefnda liðsins. Forráðamenn THW Kiel leita nú dyrum og dyngjum að línumanni eftir að ljóst varð að Hendrik Pekeler leikur ekki með liðinu fyrr en eftir áramót. Pekeler sleit hásin undir lok síðasta keppnistímabils.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -