- Auglýsing -
- Handknattleiksþjálfarinn margreyndi, Valero Rivera, var tekinn í frægðarhöll spænska handknattleikssambandsins í vikunni. Rivera lék með Barcelona í 18 ár áður en hann færði sig út í þjálfun. Á 20 árum í stól þjálfara Barcelona vann lið félagsins meistaratitilinn á Spáni í 12 skipti og Evrópukeppni félagsliða sex sinnum.
- Síðan þjálfaði Rivera spænska landsliðið um árabil og varð það heimsmeistari 2013 undir hans stjórn. Rivera tók eftir það við sem þjálfari landsliðs Katar og vann við það um árabil með afbrags árangri, m.a. vann Katar silfurverðlaun á HM 2015.
- Einnig voru Veselin Vujovic fyrrverandi leikmaður Barcelona og Lorenzo Rico markvörður Barcelona á árum áður teknir inn frægðarhöll spænska handknattleikssambandsins.
- Børge Lund og Luka Panza þjálfarateymi norska úrvalsdeildarliðsins Elverum voru kjörnir þjálfarar ársins í deildinni. Elverum varð norskur meistari í vor en liðið tapaði hinsvegar fyrir Kolstad í úrslitum úrslitakeppninnar þegar barist var um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Elverum fer þar með í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
- Selfyssingurinn Tryggvi Þórisson gengur til liðs við Elverum í sumar og leikur undir stjórn Lund og Panza.
- Danski handknattleiksmaðurinn Michael Damgaard kveður þýska meistaraliðið SC Magdeburg í sumar eftir að hafa leikið fyrir lið félagsins í áratug. Ekki hefur verið opinberað hvað hinn 35 ára gamli handknattleiksmaður tekur sér næst fyrir hendur á handknattleikssviðinu.
- Auk Damgaard er víst að Antonio Serradilla og Isak Persson leika ekki með Magdeburg á næsta keppnistímabili. Serradilla gengur til liðs við Stuttgart en framtíðarlið Perssons er ekki opinbert.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -