- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Rúnar, Ólafur, Tryggvi, Arnór, Sveinn

- Auglýsing -
  • HSG Wetzlar, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, tapaði fyrir Flensburg á útivelli í 23. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gærkvöld, 35:31. Flensburg er næst efst í deildinni en Wetzlar næst neðst. Patrick Volz skoraði 10 mörk fyrir Flensburg og Benjamin Burić varði 18 skot, 38%.
  • Philipp Ahouansou skoraði níu mörk fyrir Wetzlar og Andreas Palicka varði 13 skot, þar af eitt vítakast, 34%, í marki Wetzlar.
  • Ólafur Brim Stefánsson og félagar í Junior Fasano féllu úr leik í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í gær er þeir töpuðu fyrir Albatro Siracusa, 31:29, á útivelli. Ólafur Brim skoraði fimm mörk í leiknum fyrir Junior Fasano sem var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16:14.
  • Tryggvi Þórisson og liðsfélagar í Elverum eru áfram efstir í norsku úrvalsdeildinni. Þeir unnu Sandefjord, 34:26, á heimavelli í gær í upphafsleik 21. umferðar norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Tryggvi skoraði ekki mark í leiknum. Elverum hefur 39 stig eftir 21 leik. Kolstad er í öðru sæti með 33 stig að loknum 20 leikjum.
  • Arnór Viðarsson skoraði fimm mörk og gaf tvær stoðsendingar þegar HF Karlskrona gerði jafntefli við Alingsås HK, 33:33, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik á heimavelli í gær. HF Karlskrona situr í 9. sæti með 22 stig eftir 22 leiki. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni.
  • Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk og lék með í rúmar 37 mínútur með Chambéry þegar liðið tapaði fyrir Montpellier, 35:31, á heimavelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Chambéry er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig eftir 18 leiki. Montpellier er í þriðja sæti með 29 stig, fjórum stigum á eftir Nantes og PSG sem sitja í tveimur efstu sætum deildarinnar.
  • Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -