- Auglýsing -
- Jaron Siewert þjálfari Füchse Berlin hefur verið valinn þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni í fyrsta sinn. Lið hans hefur verið frábært í deildinni á tímabilinu og situr í efsta sæti fyrir lokaumferðina á morgun.
- Olympiakos vann AEK Aþenu í annarri viðureign liðanna um gríska meistaratitilinn í handknattleik karla í gær, 31:26. Olympiakos er þar með í kjörstöðu. Liðið hefur tvo vinninga en AEK engan. Þrjá sigra þarf til að verða meistari.
- Barcelona, Huesca, Bidasia Irún og Ademar León er tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í handknattleik karla. Undanúrslitaleikirnir verða háðir í dag og úrslitaleikurinn á morgun.
- Norski markvörðurinn Sander Heieren gengur til liðs við Fredericia HK í sumar frá TTH Holstebro þar sem hann hefur verið undanfarin þrjú ár. Heieren er 26 ára gamall og hefur leikið níu landsleiki fyrir Noreg.
- RD Slovan Ljubljana er landsmeistari í Slóveníu í handknattleik karla eftir að hafa lagt Gorenje Velenje í tvígang í úrslitum. Uppgangur RD Slovan Ljubljana hefur verið ævintýralegur á skömmum tíma undir stjórn þjálfarans Uros Zorman. Liðið var bikarmeistari í apríl og vann nú úrslitakeppnina mjög örugglega.
- Síðast vann RD Slovan Ljubjana meistaratitilinn árið 1980 þegar Júgóslavía var og hét. Forráðamenn RD Slovan Ljubjana ætla sér stærri hluti á næstu árum en lengi hefur höfuðborg Slóveníu ekki átt handboltalið í fremstu röð í karlaflokki.
- Auglýsing -