- Auglýsing -
- Horst Singer, sem skoraði fyrsta sirkusmark handboltasögunnar fyrir rúmum 70 árum, er látinn á nítugasta aldursári. Þar með eru allir leikmenn þýska landsliðsins sem varð heimsmeistari utanhúss á stórum velli 1955 fallnir frá. Þjóðverjar unnu Svisslendinga, 25:13, á Rote Erde Stadium í Dortmund að viðstöddum 50 þúsund áhorfendum.
- Árið áður skoraði Singer fyrsta sirkusmark handboltasögunnar, eða Kempa-Tor, í landsleik Þjóðverja og Svía í Schwarzwaldhalle í Karlsruhe. Singer rifjaði oft upp markið góða, síðast á níræðisafmæli sínu fyrr á þessu ári. Hann fékk sendingu frá Bernhard Kempa úr hægra horni um leið og hann stökk inn í vítateiginn, greip boltann á lofti og skoraði. Áhorfendur gripu andann á lofti enda aldrei séð annað eins.
- Singer lék lengst af fyrir Göppingen og var í fyrsta þýska félagsliðinu sem vann Evrópukeppni bikarhafa. Singer lék 25 landsleiki og skoraði 68 mörk.
- Annar þekktur handknattleiksmaður frá fyrri tíð, Slóveninn Herbert Jeglič, lést á dögunum 81 árs gamall. Jeglič lék handknattleik um árabil og var einnig þjálfari. Síðar var hann alþjóðlegur dómari og myndaði par með Stefan Jug. Þeir dæmdu m.a. á Ólympíuleikunum 1988 og 1992 og dæmdu úrslitaleik karla á ÓL 1988. Einnig dæmdu Jeglič og Jug úrslitaleik HM karla 1990. Þegar flautan fór á hilluna hjá Jeglič var hann eftirlitsmaður á nokkrum stórmótum í handknattleik, m.a. á ÓL 2000 í Syndey.
- Daninn Morten Soubak hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Japans í handknattleik kvenna. Soubak hefur víða komið við í þjálfun á síðustu árum og m.a. þjálfað kvennalandslið Brasilíu og Angóla með afar góðum árangri.
- Ljóst er orðið að norski landsliðsmarkvörðurinn Katrine Lunde leikur ekki áfram með danska meistaraliðinu Odense Håndbold á næstu leiktíð. Félagið hefur kvatt Lunde á samfélagsmiðlum og þakkað henni kærlega fyrir frábært samstarf síðustu mánuði. Lunde kom til félagsins í byrjun mars og átti stóran þátt í að Odense vann danska meistaratitilinn á dögunum í fyrsta sinn í þrjú ár. Einnig lék Lunde stórt hlutverk þegar Odense lék í fyrsta skipti til úrslita í Meistaradeild kvenna 1. júní sl.
- Óvíst er hvort Lunde ætlar að leggja á skóna á hilluna eða taka upp þráðinn annarstaðar. Hún er 45 ára gömul og hefur sýnt á leiktíðinni að hún er enn fremsti markvörður heims í kvennaflokki.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -