- Auglýsing -
- Stiven Tobar Valencia og samherjar í Benfica komust í átta liða úrslit portúgölsku bikarkeppninnar í gærkvöld. Þeir lögðu Carvalhos, 36:28, á útivelli. Stiven Tobar skoraði þrjú mörk.
- Sveinn Jóhannsson skoraði þrjú mörk og var einu sinni vikið af leikvelli í góðum sigri liðs hans, Chambéry, á Dijon á útivelli, 34:30, í 20. umferð af þrjátíu í efstu deild franska handknattleiksins í gærkvöld. Chambéry situr í sjötta sæti með 22 stig.
- Elmar Erlingsson skoraði eitt mark og gaf fjórar stoðsendingar þegar lið hans, Nordhorn-Lingen, tapaði með 11 marka mun fyrir Potsdam, 34:23, í uppgjöri liðanna í fjórða og fimmta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins í gærkvöld. Leikið var í Potsdam.
- Nordhorn-Lingen féll niður í sjötta sætið við tapið vegna þess að á sama tíma vann Eintracht Hagen botnliðið, Oppenweiler/Backnang, 42:27, í Hagen. Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark fyrir Oppenweiler/Backnang sem er langneðst í deildinni með einungis tvö stig í 24 leikjum.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar í fjögurra marka tapi Alpla Hard fyrir Jags í toppleik austurrísku 1. deildarinnar, 30:26, í Bregenz í gærkvöld. Tryggvi Garðar Jónsson var ekki á meðal þeirra sem skoruðu fyrir Alpla Hard. Jags situr á toppnum með 21 stig, sama fjölda stiga og Alpla Hard í öðru sæti.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -




