- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Sumaræfingar, Jansen, Lackovic, Aþenuliðin mætast, Spánn

Markus Gaugisch landsliðsþjálfari þýska landsliðsins í handknattleik kvenna. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Markus Gaugisch þjálfari þýska kvennalandsliðsins í handknattleik ætlar að kalla landsliðið saman til vikulangra æfingabúða frá 7. júlí. Gaugisch hefur í hyggju að velja 22 leikmenn til æfinganna sem verða fyrsti liður í undirbúningi landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi frá lokum nóvember og fram í desember. Gaugisch segir ekki veita af að hefjast handa við að leggja línurnar enda ætli hann sér að vera með þýska liðið í allra fremstu röð á HM
  • Íslenska landsliðið verður í riðli á HM kvenna með þýska landsliðinu ásamt landsliðsin Serbíu og Úrúgvæ. Leikið verður í Porsche Arena í Stuttgart
  • Torsten Jansen þjálfari HSV Hamburg og aðstoðarmaður hans, Blazenko Lackovic, hafa skrifað undir nýja samning við félagið. Samningur Jansen er til þriggja ára en Lackovic er með samning til næstu tveggja ára. Jansen hefur þjálfað HSV frá 2017 og gengið með liðinu í gegnum súrt og sætt. HSV vann Eisenach, 31:29, í gær á heimavelli og situr í 10. sæti af 18 liðum deildarinnar. 
  • AEK Aþena leikur við Olympiakos um gríska meistaratitilinn í handknattleik karla. AEK-menn unnu Drama öðru sinn í gærkvöld í undanúrslitum, 31:22. Olympiakos, sem mætti Val og tapaði í úrslitum Evrópubikarkeppninnar fyrir ári lagði Diommidis Argous einnig í tveimur leikjum í undanúrslitum. Aþenuliði tvö höfnuðu í tveimur efstu sætum grísku deildarinnar. Fyrsti úrslitaleikurinn fer fram á mánudaginn.
  • AEK-liðið bíður enn eftir niðurstöðu varðandi síðari úrslitaleikinn í Evrópubikarkeppninni við HC Alkaloid en leikmenn AEK neituðu að leika. 
  • Spánarmeistarar Bera Bera leika við Elche í úrslitum spænsku 1. deildarinnar í handknattleik kvenna. Bera Bera vann Málaga, sem tapaði fyrir Val í 16-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í vetur sem leið, í tveimur leikjum í undanúrslitum. 
  • Bera Bera tapaði fyrir Blomberg-Lippe í átta liða úrslitum Evrópudeildar kvenna í vor. Elín Rósa Magnúsdóttir leikmaður Evrópubikarmeistara Vals verður leikmaður Blomberg-Lippe á næstu leiktíð ásamt landsliðskonunum Andreu Jacbosen og Díönu Dögg Magnúsdóttur.
  • Elche lagði deildarmeistara Guardes í tveimur leikjum í undanúrslitum. Elche hafði áður rutt Porrino úr vegi í átta liða úrslitum. Porrino tapaði naumlega fyrir Val í úrslitaleikjum Evrópubikarkeppni kvenna á dögunum.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -