- Auglýsing -
- Stian Tønnesen þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins HØJ Elite var látinn taka hatt sinn og staf fyrir helgina. Patrik Liljestrand aðstoðarþjálfara var gert að að gera það sama. HØJ Elite kom upp í úrvalsdeildina fyrir leiktíðina og rakaði til sín öflugum leikmönnum af ýmsum þjóðernum. Árangurinn hefur látið á sér standa og eftir 15 marka tap fyrir GOG á fimmtudagskvöld, 37:22, var stjórnendum HØJ nóg boðið.
- Ekki liggur fyrir hver tekur við af Tønnesen og Liljestrand.
- Spænski landsliðsmaðurinn Abel Serdio hefur endurnýjað samning sinn við pólska meistaraliðið Wisla Plock. Nýi samningurinn gildir til næstu tveggja ára. Serdio hefur leikið með Plock frá árinu 2021.
- Slóvenska handknattleikskonan Ana Gros hefur ákveðið að binda enda á handknattleiksferilinn í vor. Gros, sem er 35 ára gömul, hefur verið ein öflugasta örvhenta skyttan í evrópuskum handknattleik um árabil. Hún leikur um þessar mundir með franska liðinu Brest Bretagne. Gros hefur m.a. skorað 986 mörk á ferlinum í Meistaradeild og vantar aðeins 14 mörk til að komast í hóp með Anita Görbicz, Jovanka Radičević og Cristina Neagu sem eru þær einu sem hafa skoraði meira en 1.000 mörk í Meistaradeildinni.
- Sænska landsliðskonan Tyra Axnér hefur samið við rúmenska meistaraliðið CSM Búkarest frá og með næsta sumri en þá rennur samningur hennar við franska meistaraliðið Metz sitt skeið á enda. Tyra er dóttir landsliðsþjálfara Svíþjóðar og danska liðsins Esbjerg, Tomas Axnér.
- Forráðamenn þýska handknattleiksliðsins Flensburg hafa samið við bosníska línumanninn Adin Faljić til loka leiktíðar. Hann kemur til félagsins frá RK Zagreb og á að brúa bilið sem myndaðist í liðinu vegna meiðsla Danans Lukas Jørgensen sem sleit krossband í upphafi Evrópumótsins í síðasta mánuði.
- Auglýsing -



