- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Tryggvi, Elvar, Bjarki

- Auglýsing -
  • Tryggvi Þórisson skoraði þrjú mörk þegar Elverum vann Nærbø, 34:28, á heimavelli í 16. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld.  Elverum hefur þar með tveggja stiga forskot í efsta sæti deildarinnar, 29 stig, meðan Kolstad, sem gerði jafntefli við Follo í fyrradag, er með 27 stig í öðru sæti.
  • Tryggvi lét einnig til sín taka í vörninni og var einu sinni vikið af leikvelli.
  • Elvar Ásgeirsson var ekki í leikmannahópi Ribe-Esbjerg í gær þegar liðið steinlá fyrir Nordsjælland, 41:31, á heimavelli. Ribe-Esbjerg er næst neðst með 13 stig eftir 19 leiki af 26.
  • Bjarki Már Elísson fékk frí frá leik með One Veszprém í gær þegar liðið vann stórsigur á Budakalász, 43:19, á heimavelli í ungversku 1. deildinni í handknattleik. Þetta var fjórtándi sigur One Veszprém í deildinni á leiktíðinni. Liðið er í efsta sæti. Egyptinn Yehia Eldeira var markahæstur með átta mörk.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -