- Auglýsing -
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði sex mörk og gaf sjö stoðsendingar þegar Alpla Hard lagði Hollabrunn, 33:29, á heimavelli í austurrísku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu fyrir Alpa Hard sem Hannes Jón Jónsson þjálfar til loka keppnistímabilsins. Tryggva Garðari var einu sinni vikið af leikvelli í viðureigninni.
- Alpla Hard er í öðru sæti deildarinnar með 14 stig eftir 12 leiki.
- Sveinn Jóhannesson skoraði ekki mark þegar Chambéry féll úr leik í 8-liða úrslitum frönsku bikarkeppninnar í gærkvöld. Chambéry tapaði á heimavelli fyrir Nimes, 24:23.
- Auglýsing -



