- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Tumi, Tryggvi, Hannes, Viktor

- Auglýsing -
  • Tumi Steinn Rúnarsson skoraði eitt mark og átti þrjár stoðsendingar í jafntefli Alpla Hard við Graz á heimavelli í gær í upphafsleik 16. umferðar austurrísku 1. deildarinnar í handknattleik. Graz er í næst neðsta sæti en Alpla Hard er í öðru sæti.
  • Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark úr eina markskoti sínu í leiknum. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard. Næsti leikur liðsins verður gegn grannliðinu Bregenz á laugardaginn. Mætast þá stálin stinn að vanda.
  • Viktor Petersen Norberg lánaðist ekki að skora fyrir Elbflorenz í sigurleik, 31:30, á verðandi samherjum Adams Thorstensen í VfL Lübeck-Schwartau í 2. deild þýska handknattleiksins í fyrrakvöld. Dresden-liðið Elbflorenz er í öðru til þriðja sæti deildarinnar ásamt Balingen með 34 stig eftir 22 umferðir af 34. Bietigheim er efst með 36 stig. Potsdam og Nordhorn, sem Elmar Erlingsson leikur með, eru skammt á eftir með 30 stig hvort.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -