- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Undanúrslit HM, Pajovic og fleiri, Semper, Prantner, Truczenko

Lúkkudýr heimsmeistaramóts karla í handknattleik 2025. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Danir leika í undanúrslitum sjöunda stórmótið í röð (HM, EM,ÓL) í kvöld þegar þeir mæta Portúgal í undanúrslitum Unity Arena-keppnishöllinni í Bærum í Noregi, nærri þeim stað sem Fornebu flugvöllur stóð í eina tíð. Portúgal hefur hinsvegar aldrei náð áður í undanúrslit á stórmóti karla í handknattleik. Viðureign Danmerkur og Portúgal hefur klukkan 19.30.
  • Ljóst er eftir tap Frakka fyrir Króötum í undanúrslitum í gærkvöld, 31:28, verður til þess að fjórða heimsmeistaramótið í röð fara Frakkar heim án gullverðlauna. Þeir leika um bronsið klukkan 14 á sunnudaginn við tapliðið í viðureign Portúgal og Danmerkur.
  • Ales Pajovic skrifaði í gær undir tveggja og hálfs árs samning um þjálfun þýska handknattleiksliðsins Flensburg-Handewitt. Pajovic tekur þegar til starfa hjá Flensburg. Hann mun samhliða þjálfa austurríska karlalandsliðið fram á mitt árið þegar samningurinn við sambandið rennur úr. 
  • Pajovic, sem er 46 ára gamall Slóveni, tekur við af Dananum Nicolej Krickau sem sagt var upp hjá Flensburg um miðjan desember. Síðan hafa Anders Eggert aðstoðarþjálfari og Ljubomir Vranjes íþróttastjóri stýrt liðinu og séð um þjálfun. Eggert verður áfram aðstoðarþjálfari Flensburg. 
  • Pajovic tók við þjálfun austurríska landsliðsins snemma árs 2019 af Patreki Jóhannessyni
  • Útlit er fyrir að Franz Semper leiki ekki með SC DHfK Leipzig  fyrstu vikurnar eftir að flautað verður á ný til leiks í þýsku 1. deildinni í næstu viku. Semper á keppnistímabilinu meiddist á ökkla með þýska landsliðinu á HM á dögunum. Meiðslin eru högg fyrir Rúnar Sigtryggsson þjálfara Leipzig og liðsmenn. Ekki aðeins hefur Semper leikið afar vel á leiktíðinni heldur koma meiðsli rakleitt í kjölfarið á sölu Leipzig á Viggó Kristjánssyni til HC Erlangen. Viggó og Semper leika sömu stöðu á leikvellinum. Fleiri leikmenn Leipzig eru frá keppni vegna meiðsla.
  • Ítalski landsliðsmaðurinn Leo Prantner hefur samið við þýska liðið Füchse Berlin og gengur til liðs við félagið strax um mánaðarmótin Hann á að fylla skarð Tobias Reichmann sem hefur ákveðið að hætta af persónulegum ástæðum. Prantner lék vel með ítalska landsliðinu á HM og skoraði m.a. 37 mörk. 
  • Úkraínska stórskyttan Ihor Truczenko hefur framlengt samning sinn við franska liðið Limoges til eins árs, fram á mitt árið 2026. Truczenko kom til félagsins frá HC Motor sumarið 2023.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -