- Auglýsing -
- Michael Wiederer forseti Handknattleikssambands Evrópu, EHF, fær ekki mótframboð á þingi EHF í byrjun september. Ekkert mótframboð barst eftir því sem fram kemur í tilkynningu. Wiederer, sem er 69 ára gamall Austurríkismaður hefur verið forseti EHF frá 2016 en áður var hann í nærri aldarfjórðung framkvæmdastjóri sambandsins.
- Svartfellingurinn Predrag Boskovic, varaforseti EHF, og Daninn Henrik La Cour, sem er gjaldkeri EHF, fá heldur ekki mótframboð og sitja þar með fastast áfram.
- Til fleiri embætta verður sjálfkjörið, m.a. til formanns mótanefndar, þar sem Serbinn Bozidar Djurkovic fékk ekki mótframboð.
- Ein af þekktari handknattleikskonum Danmerkur á síðustu árum, Stine Jørgensen, hefur ákveðið að láta gott heita á handknattleiksvellinum. Hún tilkynnti ákvörðun sína á samfélagsmiðlum í gær. Jørgensen lék víða við góðan orðstír og tók m.a. þátt í 149 landsleikjum. Síðast lék hún með København Håndbold undanfarin þrjú ár. Jørgensen leggur stund á meistaranám í viðskiptum.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -