- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Ýmir, Einar, Dana, Elliði, Teitur, Gísli, Ómar, Daníel, Óðinn

Ýmir Örn Gíslason leikmaður Göppingen. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Ýmir Örn Gíslason landsliðsmaður í handknattleik hefur verið skipaður fyrirliði þýska liðsins FRISCH AUF! Göppingen. Ýmir Örn gekk til liðs við félagið í sumar eftir fjögurra ára veru hjá Rhein-Neckar Löwen
  • Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk fyrir IFK Kristianstad vann Vinslövs HK, 32:27, í fyrstu umferð riðlakeppni sænsku bikarkeppninnar á heimavelli Vinslövs í gær.  Þetta var fyrsti leikurinn í opinberu móti hjá Einari Braga með IFK eftir að hann kom til félagsins frá Íslandsmeisturum FH í sumar. 
  • Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði 15 mörk fyrir Volda þegar liðið vann stórsigur á Godøy, 45:6, í fyrstu umferð norsku bikarkeppninnar í kvennaflokki. 
  • Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk og Teitur Örn Einarsson eitt þegar Gummersbach tapaði fyrir Magdeburg í æfingaleik í gær, 33:30. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk og Ómar Ingi Magnússon þrjú fyrir Magdeburg. 
  • Daníel Þór Ingason skoraði tvö af mörkum þýska liðsins Balingen-Weilstetten í sigri á  svissnesku meisturunum Kadetten Schaffhausen, 34:33, í hörkuleik í æfingaleik í Schaffhausen í gærkvöld. Óðinn Þór Ríkharðsson lék að vanda með Kadetten. Hann skoraði sex mörk, eitt úr vítakasti.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -