Létt var yfir leikmönnum, þjálfurum og starfsmönnum íslenska landsliðsins í handknattleik síðdegis þegar æft var í litlum æfingasal við hlið keppnishallarinnar í Innsbruck í Austurríki. Tveir dagar eru þangað til fyrsti leikur Íslands á Evrópumótunu fer fram en liðið leikur við Hollendinga á föstudaginn kl. 17.
Landsliðið kom til Innsbruck á þriðjudaginn eftir fimm daga í Schaffhausen í Sviss við æfingar og leiki.
Átján leikmenn liðsins tóku þátt í æfingunni. Eftir góða upphitun var skipt í tvö lið í stuttan fótboltaleik þar sem þær eldri fór með sigur úr býtum. Þeim tókst að svara fyrir tap í leik í gær. Eftir upphitun og fótbolta var hefðbundin handboltaæfinga.
Íslenska landsliðið æfir í aðal keppnishöllinni í hádeginu á morgun.
Sjá einnig: EM kvenna ”24 – leikjadagskrá, riðlakeppni
EM hefst á morgun með leikjum í þremur riðlum af sex. Þar á meðal verður norska landsliðið undir stjórn Þóris Hergeirssonar í eldlínunni annað kvöld í leik við Slóveníu í Innsbruck.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari er í Innsbruck á vegum handbolti.is. Hann var með myndavélar sínar á æfingunni síðdegis og tók myndirnar hér fyrir neðan.
(Smellið á myndirnar til að sjá þær í hærri upplausn).