Hátt í 2.000 áhorfendur fylltu íþróttahúsið í Kaplakrika í gær þegar landslið Íslands og Svíþjóðar mættust öðru sinni í vináttuleik í handknattleik karla. Eftir því sem næst verður komist var þetta fyrsti leikur A-landsliðs karla í Kaplakrika síðan 23. júlí 2012 þegar landsliðið mætti argentínska landsliðinu í tveimur dögum fyrir brottför beggja liða á Ólympíuleikana í London. Íslenska landsliðið vann þá viðureign, 29:22.
Rífandi góð stemning var í Kaplakrika í gær og umgjörð leiksins FH til sóma, rétt eins og segja má um Val sem hýsti fyrri vináttulandsleikinn á fimmtudagskvöld.
Það setti svip á leikinn um stund þegar áhorfandi veiktist um miðjan fyrri hálfleik. Var leikurinn vitanlega stöðvaður um stund meðan hlúð var að áhorfandanum. Öllum viðstöddum var afar létt nokkrum mínútum síðar þegar Ingvar Örn Ákason vallarþulur tilkynnti að ekki væri um alvarleg veikindi að ræða.
Svíar unnu leikinn í gær, 30:27, rétt eins og þann fyrri, 35:33.
Jói Long (J.L.Long) myndaði leikinn í gær fyrir handbolti.is. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir hans.
-Smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.






































