Landsliðsmaðurinn í handknattleik og leikmaður svissnesku meistaranna, Kadetten Schaffhausen, skoraði glæsilegasta markið í 7. umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik sem fram fór í gær. Alltént er það mat EHF sem tók saman myndskeið með fimm bestu mörkum umferðinnar og birti í morgun.
Óðinn Þór skoraði markið eftir hraðaupphlaup gegn Montpellier. Þetta var eitt átta marka Óðins Þórs í leiknum en hann var markahæstur hjá Kadetten.
Yesterday’s best goals. It was very difficult to keep only 5! #ehfel 🔥🤩
— EHF European League (@ehfel_official) February 8, 2023
5️⃣ Juan Carlos SEMPERE | @bmbenidorm
4️⃣ Afonso COEHLO LIMA | Aguas Santas Milaneza
3️⃣ Natan SUÁREZ | @SCPModalidades
2️⃣ Tomislav SEVERC | @rk_nexe
1️⃣❓
Enjoy the top 1 and let us know what you think! pic.twitter.com/3ePAj7Itym
Kadetten tapaði leiknum með fjögurra marka mun, 40:36, og situr í þriðja sæti A-riðils keppninnar.
Evrópudeildin – 7. umferð: úrslit og staðan
Óðinn Þór hefur gert það gott með Kadetten á leiktíðinni auk þess að vekja verulega athygli með íslenska landsliðinu á HM í síðasta mánuði. Hann gekk til liðs við Kadetten á síðasta sumri eftir eins árs veru hjá KA.