- Auglýsing -
Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska meistaraliðsins SC Magdeburg er í úrvalsliði 7. umferðar Meistaradeildar Evrópu í handknatleik sem fram fór á miðvikud- og fimmtudagskvöld.
Ómar Ingi skoraði 10 mörk þegar Magdeburg vann Porto, 41:36 á heimavelli á fimmtudagskvöldið.
Handknattleikssamband Evrópu hefur tekið saman úrvalslið umferðarinnar og klippt saman myndskeið með tilþrifum þeirra sem eru ásamt Ómari Inga í úrvalsliðinu. Smellið á örina á myndinni hér fyrir neðan. Þá opnast myndskeiðið.
Hér fyrir neðan er síðan hlekkur á samantektar myndskeið með leikjum íslensku handknattleiksmannanna í keppninni í vikunni.
- Auglýsing -