- Auglýsing -
Hér fyrir neðan er samanklippt myndskeið af allra síðustu mínútum viðureignar Íslands og Færeyja á HM 21 árs landsliða í morgun. Þar sést m.a. atvikið sem leiddi til hins umdeilda dóms úrúgvæsku dómaranna þegar leikbrot var dæmt á Össur Haraldsson rétt innan við miðjan leikvöllinn, Íslandsmegin nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Dómurinn var til þess að Færeyingar fengu vítakast og Össur rautt spjald. Úr vítakastinu jafnaði færeyska liðið metin, 35:35.
Að vera, eða ekki vera, þarna er efinn,
hvort betur sæmi að þreyja þolinmóður
í grimmu éli af örvum ógæfunnar,
eða vopn grípa móti bölsins brimi
og knýja það til kyrrðar.
- William Shakespeare
- Í þýðingu Helga Hálfdánarsonar.
- Auglýsing -