Nítján félög sækjast eftir 16 sætum í Meistaradeild kvenna í handknattleik á næsta keppnistímabili. Af þeim eiga lið níu félaga vís sæti vegna landskvóta. Tíu félög verða að bíða niðurstöðu mótanefndar Handknattleikssambands Evrópu, EHF, hvort þeim verður úthlutað keppnisrétti. Niðurstöðu er að vænta á næstu vikum.
Eftirtalin lönd og lið þeirra eiga víst sæti:
Danmörk – Team Esbjerg.
Danmörk – Odense Håndbold.
Frakkland – Metz Handball.
Þýskaland – HB Ludwigsburg.
Ungverjaland – Györi Audi ETO KC.
Svartfjallaland – OTP Group Buducnost.
Noregur – Storhamar Handball Elite.
Rúmenía – CSM Bucuresti.
Slóvenía – RK Krim Mercator.
Eftirtalin bíða með öndina í hálsinum eftir svari um sæti í Meistaradeild kvenna:
Króatía – RK Podravka Vegeta.
Danmörk – Ikast Håndbold.
Frakkland – Brest Bretagne Handball.
Þýskaland – BV Borussia Dortmund.
Ungverjaland – FTC-Rail Cargo Hungaria.
Ungverjaland – DVSC Schaeffler.
Noregur – Sola HK.
Noregur – Tertnes Bergen.
Rúmenía – Gloria Bistrita.
Rúmenía – CS Minaur Baia Mare.
Skáletruð eru nöfn þeirra liða sem bíða svara en áttu sæti í riðlakeppni Meistaradeildar á nýliðnu keppnistímabili.