Nítján félög sækjast eftir 16 sætum í Meistaradeild karla í handknattleik á næsta keppnistímabili. Af þeim eiga lið 10 félaga vís sæti vegna landskvóta. Níu félög verða að bíða niðurstöðu mótanefndar Handknattleikssambands Evrópu, EHF, hvort þeim verður úthlutað keppnisrétti. Niðurstöðu er að vænta fyrir föstudaginn 27. júní þegar dregið verður í riðla fyrir næstu leiktíð.
Eftirtalin lönd og lið þeirra eiga víst sæti:
Króatía – HC Zagreb.
Danmörk – Aalborg Håndbold.
Spánn – Barcelona.
Frakkland – Paris Saint-Germain Handball.
Þýskaland – Füchse Berlin.
Þýskaland – SC Magdeburg.
Ungveraland – One Veszprém HC.
Pólland – Orlen Wisla Plock.
Portúgal – Sporting CP.
Rúmenía – Dinamo Bucuresti.
Lið eftirtalinni þjóða hafa óskað eftir sæti í Meistaradeildinni. Þremur þeirra verður synjað:
Danmörk – GOG.
Frakkland – HBC Nantes.
Ungverjaland – OTP Bank – PICK Szeged.
N-Makedónía – HC Eurofarm Pelister.
Noregur – Kolstad Håndbold.
Pólland – Industria Kielce.
Portúgal – FC Porto.
Slóvenía – RD LL Grosist Slovan.
Sviss – Kadetten Schaffhausen.
Skáletruð eru nöfn þeirra liða sem bíða svara en áttu sæti í riðlakeppni Meistaradeildar á nýliðnu keppnistímabili.