- Auglýsing -
Amalie Frøland, 27 ára norskur markvörður, hefur samið við ÍBV um að verja mark liðsins á næsta keppnistímabili í Olísdeildinni og í Poweradebikarnum. Hún kemur til Vestmannaeyja frá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad HK sem mætti Val í Evrópubikarkeppninni í nóvember á síðasta ári.
Hjá Kristianstad var Frøland í tvö ár en áður var hún m.a. með Sola HK og Hinna Håndball í Noregi og er sögð búa yfir mikilli reynslu úr efst deildum Noregs og Svíþjóðar.
Frøland kemur í stað Mörtu Wawrzynkowska sem varið hefur mark ÍBV undanfarin ár með miklum sóma og verið ein af betri markvörðum Olísdeildarinnar.
Konur – helstu félagaskipti 2025
- Auglýsing -