Nýjum leikmönnum rignir nánast inn hjá kvennaliði Stjörnunnar en forráðamenn handknattleiksdeildarinnar tilkynntu í dag um þriðja nýja leikmanninn á einum sólarhring sem þeir hafa náð samkomulagi við. Nýjasta viðbótin er færeyska handknattleikskonan Natasja Hammer.
Var hjá Haukum
Natasja, sem samið hefur til tveggja ára við Stjörnuna, þekkir vel til í íslenskum handknattleik því hún lék með Haukum í tvö ár, frá 2021 til 2023. Eftir Natasja, sem á íslenskan föður, Finn Hansson, fór frá Haukum var hún eitt tímabil með StÍF en síðasta ár var hún með uppeldisfélagi sínu Kyndli í Þórshöfn.
Natasja hefur spilað með öllum yngri landsliðum Færeyja og á leiki með A landsliði Færeyja.
„Ég er mjög ánægður að fá Natösju til okkar í Stjörnuna. Hún er frábær íþróttamáður sem á eftir að styrkja lið okkar mikið. Hún er með góða yfirsýn, sterk 1/1 og getur spilað allar stöður fyrir utan,” segir Patrekur Jóhannesson þjálfari meistaraflokksliðs Stjörnunnar í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.
Auk Natösju hefur Stjarnan samið Rakel Guðjónsdóttur, Anítu Björk Valgeirsdóttur, Magréti Einarsdóttir, markvörður, Söru Katrínu Gunnarsdóttur á síðustu vikum.
Konur – helstu félagaskipti 2025