- Auglýsing -
Agnar Smári Jónsson, hægri skytta Vals, mun ekki leika með liðinu á næsta tímabili. Handkastið greinir frá því að handknattleiksdeild Vals hafi ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi Agnars Smára.
Samningur hans átti upphaflega að renna út sumarið 2027 en nú getur Agnar Smári róið á önnur mið að yfirstandandi tímabili loknu.
Hann hefur töluvert glímt við meiðsli á tímabilinu og komið við sögu í 15 leikjum af 22 í Olísdeildinni, þar sem Valur stóð uppi sem deildarmeistari.
Agnar Smári, sem er 32 ára gamall, ólst upp hjá Val en hefur einnig leikið með ÍBV hér á landi og Mors-Thy í Danmörku.
- Auglýsing -



