- Auglýsing -
Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður í handknattleik fékk frí í gær til þessað kasta mæðinni eftir langa og stranga törn þegar Kadetten Schaffhausen mætti Handball Stäfa og vann örugglega, 44:31, á heimavelli í svissnesku A-deildinni í handknattleik.
Kadetten er efst í deildinni með 38 stig eftir 19 leiki. Handball Stäfa rekur lestina með þrjú stig.
Óðinn Þór lék í 7 klukkustundir og 11 mínútur af 9 klukkustundum sem íslenska landsliðið lék á EM sem lauk á sunnudaginn. Aðeins Viktor Gísli Hallgrímsson var með meiri leiktíma af leikmönnum íslenska landsliðsins á mótinu.
Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -



