„Við vorum bara eftir á allan tímann og náðum ekki að spila okkar leik,“ sagði svekktur Ómar Ingi Magnússon, fyrirliði Íslands, í samtali við handbolta.is eftir eins marks tap fyrir Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin í Herning í Danmörku í dag.
„Þeir spiluðu sinn leik og stjórnuðu honum svolítið. Við vorum að elta og það er helvíti erfitt á móti þeim. Ég held að það sé svona aðallega það. Við náum ekki að gera okkar einhvern veginn, sérstaklega varnarlega finnst mér við þurfa að gera miklu betur,“ sagði Ómar.
Fjórða sætið niðurstaðan hjá Íslandi er Dagur hirti bronsverðlaunin
Ómar skoraði tólf mörk, þar af tíu úr vítaköstum, og var með 100% skotnýtingu. Liðsfélögum hans gekk ekki jafn vel að nýta færin sín.
Gríðarlega svekkjandi úr því sem komið var
„Við vorum að fá helling af færum og hvort við séum að skjóta illa eða eitthvað, það getur gerst. En mér fannst við líka geta verið töluvert betri varnarlega,“ sagði hann.
Góður lokakafli Íslands dugði ekki til. „Auðvitað reyndum við. Það gáfu allir allt í þetta og menn eru að berjast eins og þeir geta en það bara gekk ekki,“ sagði Ómar.
Landsliðsfyrirliðinn viðurkenndi að íslensku leikmennirnir væru svekktir að hafa ekki náð að vinna til bronsverðlauna í dag.
„Þetta er náttúrlega gríðarlega svekkjandi úr því sem komið var. Okkur langaði náttúrlega að taka þriðja sætið. En það gekk bara ekki því miður,“ sagði Ómar Ingi Magnússon að lokum í samtali við handbolta.is.


