Handknattleiksmaður Ólafur Brim Stefánsson gengur til liðs við Hörð Ísafjörð og leikur með liðinu í Grill 66-deildinni að minnsta kosti til loka keppnistímabilsins. Frá þessu er sagt á X-síðu Handkastsins í dag.
Eftir stutta heimsókn til Slóvakíu verður næsti áfangastaður Ólafs Brim Ísafjörður.
— Handkastið (@handkastid) October 31, 2024
Ólafur Brim spilar með Herði í Grill66 deildinni í vetur. Verður Ólafur fyrsti íslenski leikmaðurinn sem gengur í raðir Harðar í ansi langan tíma. #Handkastið pic.twitter.com/uKWfBsbdAh
Áður en til félagaskipta kemur verður Hörður að leggja út nærri hálfri milljón króna í alþjóðlegt félagaskiptagjald en Ólafur Brim var síðast gjaldgengur leikmaður Al Yarmouk í Kúveit.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Ólafur Brim lék tvo leiki með Herði fyrir um ári síðan eftir að hann kvaddi Gróttu og áður en hann gekk til liðs við Al Yarmouk í Kúveit hvar hann var á síðasta vetri og í vor. Ólafur Brim samdi við Povazska Bystrica í Slóvakíu í ágúst en vera hans hjá félaginu var endasleppt því ekkert varð af félagaskiptunum þegar á hólminn var komið. Ólafur æfði aðeins með liðinu.
Ólafur Brim flutti heim til Íslands í byrjun október og hefur síðan litið í kringum sig eftir liði til þess að leika með. M.a. hafði handbolti.is spurnir af Ólafi Brimi í heimsókn hjá Val á Hlíðarenda hvar hann þekkir aðeins til.