Ólafur Örn Haraldsson handknattleiksdómari vann við sinn síðasta handboltaleik í gær þegar hann var eftirlitsmaður á úrslitaleik Hauka og Vals í bikarkeppni kvenna í handknattleik á Ásvöllum.
Ólafur Örn hefur verið dómari og eftirlitsmaður á handboltaleikjum í 51 ár. Fyrstu 30 árin var Ólafur Örn dómari hér heima auk þess að dæma erlendis. Eftir að hann lagði flautuna til hliðar tók við eftirlitsstarf á leikjum hér heima og einnig á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Ólafur Örn var síðast eftirlitsmaður ytra 17. febrúar þegar Fredericia og Kadetten Schaffhausen áttust við í 1. umferð 16-liða úrslita Evrópudeildar karla.
Ólafur Örn dæmdi árum saman með Guðjóni L. Sigurðssyni hér heima og erlendis. Var vel við hæfi að þeir voru saman við eftirlit á kveðjuleik Ólafs Arnar í gær.

Fyrir úrslitaleik Hauka og Vals var Ólafi þakkað fyrir áratugastarf sitt. Anton Gylfi Pálsson dómari afhenti Ólafi Erni blómvönd frá Handknattleiksdómarasambandi Íslands.




