- Auglýsing -
Ómar Ingi Magnússon er leikmaður maímánaðar hjá þýska meistaraliðinu SC Magdeburg. Valið endurspeglar frammistöðu hans byggt á mismunandi tölfræðiþáttum í sex leikjum Ómar Inga með Magdeburg-liðinu í þýsku 1. deildinni í nýliðnum mánuði, eftir því sem fram kemur á heimasíðu Magdeburg.
Ómar Ingi hefur jafnt og þétt sótt í sig veðrið eftir að hann byrjaði að leika á ný með Magdeburg síðla í mars eftir að hafa verið frá keppni vegna meiðsla síðan í lok nóvember.
Magdeburg er í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar einu stigi á eftir Füchse Berlin þegar tvær umferðir eru eftir. Auk þess tekur Magdeburg þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln 14. og 15. júní ásamt Barcelona, Nantes og Füchse Berlin.
- Auglýsing -