Næsta verkefni íslenska karlalandsliðsins verður í maí þegar liðið mætir Egyptalandi í tveimur vináttulandsleikjum í Kaíró. Tveimur vináttulandsleikjum gegn Svíþjóð í vikunni sem er að líða lauk báðum með tapi Íslands.
„Ég held að það verði gaman á móti öðru heimsklassa liði. Það verður erfitt. Við þurfum líka aðeins að sjá. Ég mun líka meta þetta verkefni með hliðsjón af því næsta sem er að koma,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í samtali við handbolta.is eftir síðari leikinn gegn Svíþjóð í Kaplakrika í gærkvöldi.
„Það nærir meira að vinna leiki“
„Svo tökum við stöðuna á strákunum þegar líða fer að maí. Við vegum og metum hvernig við tæklum það. Ég er svo sem ekki alveg búinn að ákveða það eins og er!“ sagði Snorri Steinn glettinn.
Fjórir leikir við Egypta á átta mánuðum
Spurður hvernig það horfi við honum að fljúga til Mið-Austurlanda miðað við ólguna sem þar ríkir vegna stríðandi fylkinga sagði Snorri Steinn:
„Það er náttúrlega ómögulegt að segja hvað verður en við komum til með að kanna það, látum leiðbeina okkur í því og fylgjum því sem verður sagt við okkur.“
Ísland mætir einnig Egyptalandi í janúar næstkomandi, þá í tveimur vináttulandsleikjum á heimavelli í undirbúningi beggja liða fyrir HM 2027 í Þýskalandi.



