Sara Katrín Gunnarsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna eftir tveggja ára veru hjá Haukum en hún varð bikarmeistari með Hafnarfjarðarliðinu í mars. Sara Katrín er annar leikmaður Haukar sem færir sig um set yfir til Stjörnunnar fyrir næstu leiktíð. Hin er Margrét Einarsdóttir markvörður.
Sara Katrín sem er 23 ára gömul, vinstri skytta og er uppalin í HK. Undanfarin tvö ár hefur hún spilað með Haukum við góðan orðstír. Til Haukar kom Sara Katrín frá Fram sem hún lék með síðari hluta keppnistímabilsins 2022/2023.
Sara Katrín á fjölmarga landsleiki með yngri landsliðum Íslands.
„Sara Katrín er leikmaður sem ég er sannfærður um að eigi eftir að styrkja okkar lið mikið. Hún hefur allt sem góður leikmaður þarf að hafa og hlakka ég mikið til að vinna með henni á næsta tímabili,” er haft eftir Patreki Jóhannessyni þjálfara Stjörnunnar í tilkynningu.
Konur – helstu félagaskipti 2025